Blogg
28.4.2009
Fimmtudagshittingur-fjör-afsláttur!!
Á fimmtudag verður hittingur hjá okkur eins og vanalega.
En þar sem það er frí á föstudeginum hjá langflestum þá ætlum við að gera okkur glaðan dag á fimmtudagskvöldinu. Við munum vera að skrappa langt frameftir og hafa gaman. Við munum byrja um kl. 18 og verðum að svo lengi sem einhverjir eru á staðnum.
Við ætlum að bjóða öllum þeim sem mæta og skrappa með okkur 15% afslátt af öllum vörum (afslátturinn gildir sem sagt eftir klukkan 18 á fimmtudaginn). Við munum bjóða uppá eitthvað gúmmulaði til að narta í á meðan við skröppum og eitthvað til að drekka með því.
Vonum að sem flestir sjái sér fært um að mæta.
María & Ólöf
8.4.2009
Opnunartími um páskana
| Fimmtudagur (Skírdagur) | Lokað |
| Föstudagurinn langi | Lokað |
| Laugardagur 11. apríl | 12.00 - 16.00 |
| Páskadagur 12. apríl | Lokað |
| Mánudagur annar í páskum | Lokað |
| Þriðjudagur 14. apríl | 11.00 - 18.00 |
3.4.2009
Nýtt frá Prima og mánaðarkittafréttir
Fleiri nýjar vörur frá Prima!!
Þær vörur sem vantaði í síðustu sendinguna frá Prima voru loks að koma til okkar. Þær verða komnar upp á morgun.
Þetta er alveg hrikalega sætur pappír!! Þessi brúni, blái og græni eru með hellings glimmeri, bara krúttlegt. Síðan eru einhverjir stafir, borði, rub-on, pebbles, blóm, laufblöð og sitthvað fleira.
Hér er smá sýnishorn fyrir ykkur: ![]()
Mánaðarkittafréttir!!
Fyrir þær ykkar sem eru áskrifendur af mánaðarkittunum hjá okkur þá eru þetta fréttir fyrir ykkur!
Þar sem stutt er í páska þá ákváðum við að drífa í að koma kittunum út til ykkar. Þau verða tilbúin á mánudag og munu fara í póst þá svo þau verði pottþétt komin til ykkar fyrir páskafríið.
Eins og vanalega þá er ekkert mál að bæta við kittin, látið okkur bara vita fyrir mánudag og við munum smella þessu með kittinu.
Þið getið séð myndir af kittunum í "myndaalbúm" hér fyrir ofan. Þar finnið þið albúm sem heitir Mánaðarkitt og þar inní finnið þið myndir af aprílkittunum.
Við óskum ykkar gleðilegra páska og vonandi náið þið að nýta eitthvað af fríinu í að skrappa.
María og Ólöf
Upplýsingar varðandi búðina
Nafn:
Scrapbooking ehf.Farsími:
6992800Tölvupóstfang:
scrap@scrap.isHeimilisfang:
Hólshraun 1bStaðsetning:
Fjarðarkaupum HafnarfirðiHeimasími:
5342808Önnur vefsíða:
www.scrap.isUm:
Opnunartímar: Mán. 11 - 18 Þri. 11 - 18 Mið. 11 - 18 Fim. 11 - 22 Fös. 11 - 18 Lau. 11 - 16 Sun. lokaðBankanúmer:
0140-26-6092Tenglar
- Insparation
- Gabrielle
- Robinzberdz
- Scrap-spjall
- Scrapbook.com
- Scrapbook.is
- Skissur
- Sketches-r-us

