Blogg
8.4.2009
Opnunartími um páskana
| Fimmtudagur (Skírdagur) | Lokað |
| Föstudagurinn langi | Lokað |
| Laugardagur 11. apríl | 12.00 - 16.00 |
| Páskadagur 12. apríl | Lokað |
| Mánudagur annar í páskum | Lokað |
| Þriðjudagur 14. apríl | 11.00 - 18.00 |
26.3.2009
Scrap á Akureyri!
Vilt þú læra að scrappa?
Scrapbook er úrklippubók sem er fyrst og fremst gerð með ljósmyndum ásamt
öðru efni. Scrap er það að föndra myndaalbúm með skrauti og
skýringum. Scrap er frábær leið til þess varðveita minningar, sögur og
myndir allt á einum og sama staðnum. Myndaalbúm sýna myndir en scrapalbúm segja sögur.
Við erum á leiðinni til Akureyrar helgina 27.-29. mars og ætlum að halda námskeið.
Námskeiðið kostar 2900 kr. og er innifalið í því kennsla og allt efni í eina síðu ásamt kynningarbækling um scrap. Það eina sem þú þarft að gera er að koma með ljósmynd(ir).
Skráning á námskeið og allar frekari fyrirspurnir getið þið nálgast með því að hringja í síma 8215617 (Ólöf) eða sent email á maria@scrap.is
Þið getið skoðað scrapsíður í myndaalbúmi, tengillinn er hér fyrir ofan.
Ath! Stéttarfélög hafa verið að greiða niður námskeiðin hjá okkur.
19.3.2009
Fimmtudagshittingur
Eins og vanalega á fimmtudögum þá er hittingur hjá okkur í kvöld.
Byrjum svona upp úr kl. 18 og erum að frameftir kvöldi.
Allir velkomnir.
Minnum líka á nýju Prima vörurnar, um að gera að kíkja í kvöld fyrir þá sem ekki komast á venjulegum opnunartíma.
Hlökkum til að sjá ykkur,
María & Ólöf
17.3.2009
Vinningshafi
Random.org valdi númerið 13.
Þessi var númer 13:
Inger Rós skrifaði:
Frábært framtak hjá ykkur.
Kv. Inger Rós
Til hamingju Inger, þú færð smá glaðning frá Prima frá okkur.
12.3.2009
Nýjar vörur og kitt
Restin af October Afternoon sendingunni er loksins komin til okkar.
Þær eru komnar upp og í sölu þannig að endilega komið og kíkið á okkur.
Þið getið skoðað myndir af nýju vörunum inní myndaalbúminu (sjá flipa hér fyrir ofan sem segir: myndaalbúm) sem er merkt: October Afternoon mars 09.
Kitt mánaðarins er einnig tilbúið. Það er úr nýju vörunum frá OA og er alveg æðislegt.
Þið getið séð myndir af því inní myndaalbúminu sem er merkt: mánaðarkitt í mars.
Í kvöld er fimmtudagshittingur hjá okkur að venju og hlökkum við til að sjá ykkur sem flest/ar.
Mæting er frá 18 og frameftir, við sitjum síðan saman og skröppum langt fram á kvöld eins og venja er hjá okkur.
Þannig að þeir sem hafa áhuga á að kíkja á hitting eða bara koma og klappa nýju vörunum þá er opið langt frameftir hjá okkur í kvöld.
Hlökkum til að sjá ykkur,
María og Ólöf
Upplýsingar varðandi búðina
Nafn:
Scrapbooking ehf.Farsími:
6992800Tölvupóstfang:
scrap@scrap.isHeimilisfang:
Hólshraun 1bStaðsetning:
Fjarðarkaupum HafnarfirðiHeimasími:
5342808Önnur vefsíða:
www.scrap.isUm:
Opnunartímar: Mán. 11 - 18 Þri. 11 - 18 Mið. 11 - 18 Fim. 11 - 22 Fös. 11 - 18 Lau. 11 - 16 Sun. lokaðBankanúmer:
0140-26-6092Tenglar
- Insparation
- Gabrielle
- Robinzberdz
- Scrap-spjall
- Scrapbook.com
- Scrapbook.is
- Skissur
- Sketches-r-us

